Ó nei !!!

Þetta er auðvitað alveg skelfilegt, að einungis karlar skuli sækja um þetta starf.  Er ekki bara best að framlengja umsóknarfrestinn þangað til einhverri konu dettur í hug að sækja um.  

"Konur sérstaklega hvattar til að sækja um".  Þessi fávitaskapur er með eindæmum.  Þora konur ekki að sækja um svona starf, hafa þær ekki til þess kjark?  Er verið að gefa það í skyn með þessari hvatningu?  Ef einstaklingurinn hefur áhuga á starfinu og telur sig uppfylla kröfurnar þá sækir hann bara um, hvort sem viðkomandi er karl eða kona.

Ég hefði skilið þetta ef enginn umsækjendanna uppfyllir hæfniskröfurnar, sem er kannski raunin þó það komi hvergi fram.  En þá ætti auðvitað að óska eftir fleiri umsóknum almennt, ekki bara frá konum.

Það ætti kannski bara að setja kynjakvóta á þetta, hvetja konur til að sækja um en letja karla til að sækja um.  Það er gríðarlega sanngjarnt... eða ekki.

Andskotans vitleysisgangur.


mbl.is Aðeins karlar sóttu um dómaraembætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað á maður nú að gera?

Ef maður vill fá sér alvöru skyndibita með öllu tilheyrandi, þá fer maður á McDonald´s.  Þú getur alltaf treyst McDonald´s, þú veist hvað þú færð.  Það er enginn dagamunur á McDonald´s.  Big Mac er alltaf nákvæmlega eins, McChicken er alltaf nákvæmlega eins og litli krúttlegi ostaborgarinn sem maður verður alltaf að kaupa aukalega til að fá nú alveg nóg út úr máltíðinni gæti verið klónaður, hann er alltaf eins.  Og fröllurnar, maður ....  mmmmmmm .....  þær bestu í heimi.

Mér er alveg nákvæmlega sama hvað fólk segir um hollustu eða óhollustu þessa matar, enda fer ég ekki á McDonald´s til að fá daglegan skammt næringarefna.  McDonald´s er einfaldlega lang besti skyndibiti sem völ er á, hann klikkar aldrei, svo ekki sé nú talað um í erfiðri þynnku.  Ég mun sakna þín, Ronald McDonald.  Komdu aftur eins fljótt og þú getur ...  Crying


mbl.is McDonald's hættir - Metro tekur við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður maður?

Er hann góður maður þessi Trawick?  Ég vona það.  Reyndar er sjálfsagt erfitt að gera verr en fíflið hann Kevin Federline ....
mbl.is Britney tekin saman við Trawick
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Britney mín komin aftur á toppinn ...

... þar sem hún á heima.

Britney, þú ert einfaldlega lang best, krýnd prinsessa poppsins.

Come on baby, hit me one more time ... Devil


mbl.is Britney fór beint á toppinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, einmitt

Konur eru betri í þessu og hinu, og karlar eru bara bölvaðir sauðir.  Söngurinn heldur áfram.  yadda yadda yadda.

Ég er með kenningu.   Kannski líst fólki á hana, kannski ekki.  Kannski hefði þetta ekki allt farið til andskotans ef við hefðum bara haldið okkur við karlkyns stjórnendur og haft konurnar bara inni á heimilum til að sjá um börnin og vaska upp og svoleiðis.  Ég meina, þetta byrjar allt að fara fjandans til þegar konum fer að fjölga í stjórnunarstöðum.  Er það ekki?

Nú verða auðvitað einhverjar kellingar brjálaðar (og Jórunn frænka líka, sem er vel að merkja alls ekki kelling, heldur bara æðisleg), en það er líka allt í lagi, af því að þá átta þær sig á því hvað það er pirrandi þegar er verið að tala um að eitt kynið sé eitthvað betra eða klárara en hitt.

Áfram strákar!  Cool


mbl.is Vilja fleiri konur í framvarðasveit atvinnulífsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmæli við heimili Rögnu?

Það er gjörsamlega ólíðandi að mótmælt sé við heimili fólks sem er bara að reyna að sinna starfi sínu af röggsemi og sanngirni, eins og Ragna.  Hún er bara að reyna að fara að lögum þessa lands.  Hvað um fjölskyldu hennar, börn og maka?  Hvers eiga þau að gjalda þó hún þurfi að taka ákvarðanir sem þóknast ekki einhverjum hópi fólks?  Hvað gerist þegar hún ákveður svo að veita einhverjum hæli og einhver annar hópur fólks er óánægður með það?  Önnur mótmæli við heimili hennar? Á þetta þjóðfélag virkilega að verða þannig að við hverja einustu ákvörðun sem kann að orka tvímælis taka einhverjir upp á því að rjúfa friðhelgi heimilis þeirra sem þurfa að taka þessar ákvarðanir?

 Látið heimilin í friði, lopasokkar!


mbl.is Brottvísun hælisleitenda ekki geðþóttaákvörðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byrjaður aftur?

"Kannski ég fari bara að blogga aftur ..." hugsaði ég þegar ég fékk endanlega ógeð á Facebook.  Og hér er ég, þegar búinn að skrifa eina færslu.  En hafið engar áhyggjur, ég mun ekki blogga nema mér finnist ég virkilega hafa eitthvað fram að færa, og ég er ekki að keppast um að vera mest lesni bloggarinn.  Wink


Hetjan Dúni Geirsson

Ég verð nú að viðurkenna að ég mætti fullur fordóma á forsýningu þessarar myndar, löngu búinn að taka afstöðu í hinum ýmsu málum tengd þessu hruni og þessum mótmælum sem fylgdu í kjölfarið.  Að sama skapi held ég að margir þeir sem voru í Háskólabíói á þessari forsýningu hafi mætt fullir fordóma, löngu búnir að taka afstöðu, og jafnvel vonast eftir að þessir útrásarvíkingar og pólitíkusar myndu nú fá á baukinn.  Svo var ekki.

Sko, þessi mynd fjallar ekkert um hrunið í sjálfu sér, heldur varpar hún upp mynd af nokkrum "persónum og leikendum" sem fólk þekkir úr þeirri atburðarás sem fór af stað í kjölfar.  Fólk má ekki halda að í þessari mynd sé fjallað um orsakir hrunsins, hverjum þetta var að kenna og eitthvað svoleiðis, þessi mynd er alls ekki þannig.  Mér fannst fólkið í myndinni nú bara sýnt í mannlegu ljósi og ekki halla neitt sérstaklega á einn eða annan.  Þetta voru ólíkir einstaklingar í ólíkri stöðu.

Ég veit ekki hverju Jón Ásgeir var að fárast yfir út af þessari mynd, það er ekki eins og hann sé að segja einhverja vitleysu þegar hann hélt að hann væri "off-camera".  Það voru eitt eða tvö tilvik þar sem hann sat bara eða stóð álengdar á meðan hann hélt að kvikmyndagerðarmaðurinn væri að gera sig kláran fyrir töku, og beið eftir honum, var svona hálf kjánalegur, eins og hann vissi ekki alveg hernig hann ætti að vera.

Ásgeir Friðgeirsson og Björgólfur jr. gengu inn í herbergi í einni tökunni og litu út eins og Jeeves og Wooster, eða einhverjir álíka spjátrungar, sem var svolítið fyndið.  Ásgeir er síðan off camera að útskýra eitthvað fyrir Helga kvikmyndagerðarmanni, ekkert alvarlegt þar.

Sturla bílstjóri og mótmælandi er duglegur og heiðarlegur maður, að mér finnst eftir að hafa séð þessa mynd, og hann og fjölskylda hans á alla mína samúð vegna þeirra aðstæðna sem þau lentu í,  Flottir strákar sem þau eiga.  Ég veit reyndar ekker tum það hvernig þetta fór hjá honum blessuðum.  Það var eins og það vantaði svona "Hvar eru þau núna?" í lok myndarinnar.

Tvennt stendur upp úr í mínum huga.

  1. Rosalega var mikið af einhverju klikkuðu liði innan um heiðarlega mótmælendur á Austurvelli.  Annars vegar einhverjir krakkavitleysingar sem voru búin að lesa yfir sig af Karli Marx, uppfull af einhverjum frösum úr bókum um auðvald og vald til fólksins, bull.  Hins vegar hyski sem sá mótmælin sem gott tækifæri til að láta að sér kveða í almennum skemmdar- og ofbeldisverkum.  Maður sá alveg geðveikisglampann og skítaglottið á þessum smátittlingum sem voru í kringum nornina, þennan son hennar og vini hans.  Þeir voru að fíla þetta í tætlur, fannst þetta geðveikt skemmtilegt að fá að standa í svona látum.  Málið er, að ef þú ert að mótmæla, þá ertu að gera það af illri nauðsyn, þetta er eitthvað sem þú finnur þig knúinn til að gera, en hefðir helst viljað sleppa.  Menn eiga ekki að mótmæla af því að þeim finnst það svona æðislega skemmtilegt, heldur vegna þess að menn eru knúnir áfram af illri nauðsyn að berjast fyrir breytingum.
  2. Dúni Geirsson.  Mikið innilega hjartanlega vona ég að þessu ungi stæðilegi maður sé enn í lögreglunni og verði um ókomna tíð.  Sönn hetja og dáðadrengur.  Ef þú lest þetta, Dúni, þá vil ég að þú vitir að mér finnst börnin mín og fjölskyldan mín öll öruggari í þessu landi með þig í lögreglunni.  Þakka þér kærlega fyrir þín fórnfúsu og óeigingjörnu störf.

Annars þokkaleg mynd, þó hún hafi í sjálfu sér engu bætt við um hrunið enda var það kannski ekki ætlunin, þá fannst mér þetta góð og mannleg frásögn af lífi nokkurra ólíkra einstaklinga og hvernig þeirra aðstæður breyttust.  Þeir sem ætla að sjá þessa mynd til að verða vitni að einhverjum krassandi efni verða fyrir vonbrigðum.


mbl.is Mynd um hrunið frumsýnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfrí

Þar sem ég hef verið sérlega latur við að blogga í ansi langan tíma hef ég ákveðið að setja bloggið í frí um stund, þar til andinn kemur aftur yfir mig.  Ég held að ég sé búinn að koma öllu á framfæri sem ég hef áhuga á að tjá mig um á þessum vettvangi - Jafnrétti kynjanna, atvinnupólitíkusa, Britney mína Spears, kynjakvóta, "jákvæða" mismunun, pólitíska rétthugsun.  Allt eru þetta málefni sem kveikja í mér neista. 

Atvinnupólitíkusarnir tala enn um kynjakvóta til að tryggja sér atkvæði og sjá ekki óréttlætið í því fyrir merkilegheitunum af sjálfum sér.  Menn verða jú að hafa vinnu, ekki satt? 

Britney greyið er alltaf á milli tannanna á fólki sem finnst allt í lagi að drulla yfir hana, bara vegna þess að hún er fræg og rík.  Öfund er ein af höfuðsyndunum, fólk ætti að líta sér nær.

Jafnrétti kynjanna er í góðum farvegi og það mun nást með tímanum.  Þvinganir eiga aldrei rétt á sér.  Aldrei. Gleymum ekki að karlar verða að fá að vera karlar og konur verða að fá að vera konur.  Strákar mega alveg leika sér með byssur og stelpur mega alveg leika sér með dúkkur. Og öfugt.  Þetta er ekkert vandamál. 

Tinni og Ástríkur eru ekki rasistar og þeir ala ekki á útlendingahatri.  Það eru bara hálfvitar sem halda slíku fram.  Það er allt í lagi að gera grín að svertingjum, konum og Svíum.  Það er líka allt í lagi að gera grín að litlum, sköllóttum körlum frá Vestmannaeyjum.  Menn verða að hafa húmor fyrir sjálfum sér.   Wink

Ég hef sagt allt sem ég vildi segja. 

Heimurinn hefur ekki hlustað. 

Vonum það besta.


Atkvæðaveiðar ráðherrans

Það er algjörlega ólíðandi að stjórnmálamenn hafi seglum eftir vindi í þessum málum.  Stjórnmálamenn eiga að standa og falla með sannfæringu sinni um öll mál.  Annað hvort finnst Björgvini G. Sigurðssyni viðskiptaráðherra rétt að taka upp kynjakvóta eða ekki.  Annað hvort er hann fylgjandi slíku eða ekki.  Svo einfalt er það. 

Það sem hann er að gera er ekkert annað en stjórnmálaleikur þar sem vinningarnir eru atkvæði kjósenda á röngum forsendum.  Á fundi þar sem sitja 80 konur og 1 karl segir hann að kynjakvóti komi vel til greina.  Klapp, klapp og húrra.  Ef á fundinum hefðu verið 80 karlar og 1 kona hefði hann einfaldlega aldrei sagt orðið kynjakvóti upphátt.  Klapp, klapp og húrra.  Þið sjáið hvað ég er að fara?  Viðskiptaráðherra hagar seglum eftir vindi, en segir ekki skoðun sína umbúðalaust og af sinni sannfæringu.  Ef það hentar honum betur að segja eitt frekar en annað, þá gerir hann það.  Hann stendur ekki og fellur með sannfæringu sinni, frekar en 90% allra íslenskra (og sjálfsagt útlendra) stjórnmálamanna.  Þetta er vandamál stjórnmalanna í hnotskurn.

Ég segi nei við kynjakvóta og ætla rétt að vona að íslenska þjóðin geri það líka.  Ég vona að fólk geri sér grein fyrir því hvers lags óréttlæti þetta væri gagnvart tugum þúsunda fólks í þessu landi.  Ég get alveg fallist á það að í sumum fyrirtækjum sitja ábyggilega einhverjir gamlir og feitir karlar með vindla sem finnst fjarstæðukennt að hleypa konum í stjórn síns fyrirtækis.  En ég þekki samt persónulega engan karlmann sem hugsar svona, ekki einn.  Og þó þekki ég alveg heilan haug af fólki.  Mismunun af því tagi er einfaldlega gamaldags og á undanhaldi með hverjum ungum karli og ungri konu sem tekur sæti gömlu feitu karlanna.  Ef kynjakvóti er settur á er verið að hefja lögbundnar þvingunaraðgerðir sem beinist gegn helmingi þjóðarinnar, því að þetta beinist gegn karlmönnum, því er ekki hægt að neita.

Það má ekki mismuna einum hópi fólks til að koma öðrum að.  Það er einfalelega mismunun.  Og munuð að það er ekkert til sem heitir jákvæð mismunun.  Það er ekkert jákvætt við mismunun.  Ég hef ekkert gert á hlut kvenna til að verðskulda að vera beittur þvingunaraðgerðum.  Á ég að gjalda fyrir syndir forfeðra minna?  Enn mikilvægara - Eiga synir mínir að gjalda fyrir syndir gamalla karla sem verða ekki lengur til þegar þeir fara úr á vinnumarkaðinn eða reyna að komast stjórn fyrirtækis? 

Ég þekki bara hreinlega engan sem dettur til hugar að líta á konur sem lakari valkost í flest störf, eða þá í stjórnir fyrirtækja.  Við karlmenn höfum jú líkamlega yfirburði, um það er ekki deilt og þess vegna erum við hæfari í sum störf en konur.  Kvenfólk er líka hæfara í t.d. umönnunarstörf en karlar, gamla góða móðurtilfinningin.  En þegar kemur að mannlegri greind eru karlar og konur alveg á pari við hvort annað.  Konur eru alveg jafn hæfir stjórnendur og karlar, það er mín skoðun.  Þess vegna sé ég ekki sanngirnina í því að hefja þvingunaraðgerðir.  Enda eiga svona þvingunaraðgerðir engan rétt á sér í frjálsu og lýðræðislegu samfélagi, aldrei.  Aldrei nokkrun tímann.

Ég hef tekið ákvörðun.  Þó að langt sé í næstu Alþingiskosningar hef ég tekið ákvörðun um hvaða flokkar koma til greina þegar ég greiði atkvæði.  Það verða þeir flokkar (eða sá flokkur) sem hafnar kynjakvóta algjörlega.  Þeir flokkar sem ekki hafna kynjakvóta koma ekki til greina.  Ef sú staða kemur upp að allir flokkar segja kynjakvóta koma til greina, þá mun ég skila auðu.  Og hananú.

Svona í lokin smá útútdúr, en samt þessu tengt.  Af hverju er keppt í karla- og kvennaflokkum í skák?  Af hverju keppa karlar og konur ekki saman?  Ég skil kynjaskiptinguna í íþróttum þar sem líkamlegir burðir skipta máli.  En skák?  Af hverju?

Elskið friðinn, leyfið körlum að vera karlar og leyfið konum að vera konur, leyfið strákum að vera hetjur ef þeir vilja og leyfið stelpum að vera prinsessur ef þær vilja.  Við erum ekki eins en erum jafnhæf til flestra verka.  Hættið að reyna að steypa okkur í sama mót.  Karlar eru frá Mars en konur eru frá Venus, eða var það öfugt ..... ?

 


mbl.is Kynjakvóti bundinn í lög?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband