Hvað á maður nú að gera?

Ef maður vill fá sér alvöru skyndibita með öllu tilheyrandi, þá fer maður á McDonald´s.  Þú getur alltaf treyst McDonald´s, þú veist hvað þú færð.  Það er enginn dagamunur á McDonald´s.  Big Mac er alltaf nákvæmlega eins, McChicken er alltaf nákvæmlega eins og litli krúttlegi ostaborgarinn sem maður verður alltaf að kaupa aukalega til að fá nú alveg nóg út úr máltíðinni gæti verið klónaður, hann er alltaf eins.  Og fröllurnar, maður ....  mmmmmmm .....  þær bestu í heimi.

Mér er alveg nákvæmlega sama hvað fólk segir um hollustu eða óhollustu þessa matar, enda fer ég ekki á McDonald´s til að fá daglegan skammt næringarefna.  McDonald´s er einfaldlega lang besti skyndibiti sem völ er á, hann klikkar aldrei, svo ekki sé nú talað um í erfiðri þynnku.  Ég mun sakna þín, Ronald McDonald.  Komdu aftur eins fljótt og þú getur ...  Crying


mbl.is McDonald's hættir - Metro tekur við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bragi Þór Valsson

Nú ættir þú bara að reyna að fjárfesta í sérleyfinu fyrst það er falt!

Ég hef aldrei skilið endalausar árásir fólks á McDonalds. Kaloríur eru kaloríur, sama hvort þær koma úr hamborgara eða grænmeti. Fólk verður bara alltaf að passa sig og borða ekki of mikið af neinu - ég er búinn að ná að grenna mig alveg fullt undanfarnar vikur og hef líklega aldrei verslað meira við McDonalds... enda gefa þeir upp nákvæmar næringarupplýsingar fyrir allt, sem er ekki hægt að segja um mörg íslensk fyrirtæki - t.d. birtir ekki einn einasti íslenski nammiframleiðandi næringarupplýsingar á sína pakka. Þeir mættu taka sér McDonalds til fyrirmyndar!

Bragi Þór Valsson, 26.10.2009 kl. 11:22

2 identicon

Hrodur tinn berst vida:

http://www.bloomberg.com/apps/news?pid=newsarchive&sid=aNNKbYNHF_Og

Gunnar Palsson (IP-tala skráð) 26.10.2009 kl. 15:45

3 Smámynd: Hreinn Ómar Smárason

Noh, það er aldeilis, hápunkturinn á bloggferlinum ..... 

Hreinn Ómar Smárason, 26.10.2009 kl. 20:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband